Hótel Dimmuborgir Mývatnssveit

Árið 2010 keyptu feðgarnir Héðinn og Helgi á Geiteyjarströnd gistieiningar frá okkur. Um var að ræða sex hús sem mynduðu saman 8 gistiherbergi ásamt kaffistofu, eldhúsi og setustofu. Öll herbergin voru með baðaðstöðu. Samtals voru þetta 162 fermetrar. Feðgarnir gengu mjög vel frá þessum einingum, settu þær á háan sökkul til að ná útsýni og klæddu svo að utan með smekklegri viðarklæðingu eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.

Share by: