STUDIO íbúð - Fullbúinn húseining
Ný fullbúin studio-eining með baðherbergi, eldhúsi og stofu/svefnrými. Það eina sem eftir stendur er að koma henni fyrir og tengja.
Einingin er sterkbyggð stálgrindareining með 2,80 m lofthæð, þreföldu gleri og viðarlíki að utan. Hún kemur fullbúin að innan: hreinlætistæki, eldhúsinnrétting með helluborði og ísskáp, gólfefni, lýsing, ofnar og allar lagnir eru komin á sinn stað.
Hentar vel sem gestahús, starfsmannaíbúð eða viðbót við núverandi húsnæði.
Rýmisskipan:
Anddyri – baðherbergi með sturtu – eldhús – stofa/svefnrými.
Vörunúmer : Studio íbúð
Verð: 8.500.000 kr. án vsk







