Terra Einingar er í samstarfi við Nordic Homes í Lettlandi um framleiðslu á hágæða timbureiningum. Nordic Homes er rótgróinn framleiðandi sem sérhæfir sig í forsmíðuðum timbureiningum og hefur áratuga reynslu af framleiðslu fyrir Norður-Evrópumarkað.
Eiginleikar og hagkvæmni
Timbureiningarnar eru byggðar á vönduðu burðarvirki úr timbri, með einangrun og innri lofthæð útfærða eftir teikningu í samræmi við kröfur íslenskrar byggingarreglugerðar.
Forsmíðaðar einingar eru hagkvæmur kostur, enda stytta þær byggingartíma og lækka viðhaldskostnað samanborið við hefðbundnar byggingar. Timbur er jafnframt endurnýjanlegt hráefni með lægra kolefnisspor en hefðbundin byggingarefni, sem gerir þessa lausn að umhverfisvænum kosti. Það er einnig náttúrulegt einangrunarefni sem stuðlar að góðri hljóð- og hitaeinangrun. Afhendingartími er að jafnaði 10–16 vikur frá pöntun.
Framleitt innandyra – undir ströngu eftirliti
Allar einingar eru framleiddar innandyra við bestu mögulegu aðstæður, óháð veðri og árstíð. Framleiðsluferlið lýtur ströngu gæðaeftirliti frá fyrsta degi til þess síðasta, sem tryggir jafna og háa gæðastaðla í hverri einingu.
Þessi aðferð við framleiðslu stuðlar að nákvæmni í frágangi, styttri framleiðslutíma og lágmarkar hættu á rakaskemmdum sem geta fylgt hefðbundinni byggingu á byggingarstað.
Hafðu samband við sérfræðinga okkar og fáðu nánari upplýsingar



















